7.500 kr
Íslandskort - Maps of Iceland
Kortagerðarmaðurinn, ljósmyndarinn og arkitektinn Snorri Þór Tryggvason er höfundur þessa magnaða korts af Íslandi. Kortið er hluti vörulínunnar Maps of Iceland, sem inniheldur veggspjöld með íslenskum kortum. Snorri Þór leggur bæði tíma og metnað í hvert kort, hann lagfærir og hreinsar rúmlega 100 ára gömul kort sem gerð voru af dönskum landmælingamönnum og kallast Herforingjaráðskortin. Þau eru svo tvinnuð saman við stafrænt þrívíddarlíkan af Íslandi. Skuggar af fjöllum og hæðum fá áhorfandann til að skynja betur landslagið og fegurð Íslands, þar sem gamli tíminn mætir þeim nýja á fallegum japönskum hágæða ljósmyndapappír. Kortið af Íslandi er unnið út frá korti Samúels Eggertssonar, kortagerðamanns frá árinu 1928 og hægt að skoða betur í versluninni.
*Stærð 70x50 cm
Pappír: 180 gr., mattur