






IKEA geitin - Fríða Karlsdóttir
4,900 kr
Listakonan Fríða Karlsdóttir vinnur með frásagnir í gegnum blandaða miðla. Verk hennar innihalda sterkar táknmyndir og með þeim dramatíserar hún hversdagsleikann og segir frá einlægum upplifunum, oft með húmor. Hér vinnur hún með hina frægu IKEA-geit sem ekki hefur alltaf átt sjö dagana sæla. Verkið er prentað í 200 eintökum á 170 g/m² pappír í Riso-prentvél á prentverkstæði bókaútgáfunnar Skriðu á Patreksfirði. Kíktu við í SJOPPUNNI og nældu þér í sjóðandi heita geit.
*A4 (29,7 x 21 cm), númerað og áritað.
Einnig er hægt að fá verkið sem póstkort.