25.7 Opið frá kl. 15-17

Listagilið / Akureyri Art Street

Miðpunktur listalífsins á Akureyri er í Kaupvangsstræti, nánar tiltekið í Grófargili sem í daglegu tali er nefnt Listagilið.

Á árum áður var þarna umfangsmikil iðnaðarstarfsemi á vegum Kaupfélags Eyfirðinga í öllum byggingum en smám saman hvarf sú starfsemi og eftir stóðu húsin tóm. Framsýnt fólk fékk þá hugmynd að stuðla að því að húsin yrðu lögð undir ýmsa listastarfsemi og sú varð raunin. Frá þeim tíma hefur lista- og menningarstarf blómstrað í Listagilinu. Þar er að finna eitt flottasta listasafn landsins, Listasafnið á Akureyri. Auk starfsemi safnsins eru ýmis félög, vinnustofur, veitingahús, verslanir og margt fleira sem hafa þar aðsetur.

/

The center of art life in Akureyri is located on Kaupvangsstræti, more specifically in Grófargil, which is colloquially known as Listagilið (Akureyri Art Street).

Years ago, extensive industrial activity run by Kaupfélag Eyfirðinga (the Eyjafjörður Co-operative Society) took place in all of these buildings, but that activity gradually disappeared, leaving the buildings empty. Forward-thinking people then had the idea to promote repurposing the buildings for various artistic activities, and that is exactly what happened. Since then, arts and culture have flourished in the Akureyri Art Street. There, you can find one of the finest art museums in the country, the Akureyri Art Museum. In addition to the museum's activities, various associations, studios, restaurants, shops, and much more are based there.

1.  Listasafnið á Akureyri - Kaupvangsstræti 8-12

Stærsta listasafn utan höfuðborgarsvæðisins með metnaðarfulla dagskrá ár hvert. Tilvalið að kíkja í safnbúð Listasafnsins í næstu heimsókn.
/
The largest art museum outside the capital area, featuring an ambitious program every year. It is ideal to drop by the Akureyri Art Museum shop during your next visit.

Heimasíða/Website - Facebook - Instagram

 

2.  Deiglan – Salur Gilfélagsins - Kaupvangsstræti 23

Skemmtilegt sýningarými sem hentar fyrir ýmsa viðburði. Fjölbreyttar sýningar á hverju ári. Einnig heimili Gilfélagsins.
/
A fun exhibition space suitable for various events. Diverse exhibitions every year. It is also the home of the Gil Society (Gilfélagið).

Heimasíða/Website - Facebook


3.  Mjólkurbúðin – Salur Myndlistarfélagsins - Kaupvangsstræti 8-12

Eitt flottasta sýningarými á Akureyri sem stýrt er af Myndlistarfélaginu. Fjölbreyttar sýningar á hverju ári.
/
One of the coolest exhibition spaces in Akureyri, managed by the Akureyri Art Association. Diverse exhibitions every year.

Heimasíða/Website - Facebook - Instagram


4.  Sjoppan vöruhús - Kaupvangsstræti 21

Minnsta og eina hönnunarsjoppa Íslands.
/
The smallest design shop in Iceland.

Heimasíða/Website - Facebook - Instagram - TikTok


5.  Ketilkaffi - Kaupvangsstræti 8-12

Sérvalið kaffi frá Kaffibrugghúsinu, spennandi réttir, vín og smávörur.
/
Specially selected coffee from Kaffibrugghúsið, exciting dishes, wine, and specialty goods.

Heimasíða/Website - Facebook - Instagram


6.  Garn í gangi - Kaupvangsstræti 21

Skemmtileg garnbúð með góðu úrvali og persónulegri þjónustu.
/
A charming yarn shop with a great selection and personal service.

Heimasíða/Website - Facebook - Instagram - TikTok


7.  Kaktus - Kaupvangsstræti 8-12

Vinnustofur og sýningarými sem stýrt er af listhópnum Kaktus.
/
Studios and an exhibition space managed by the Kaktus art collective.

Facebook - Instagram


8.  Presley Bar & grill - Kaupvangsstræti 23

Bragðgóður grillstaður með fjölbreyttum og skemmtilegum matseðli.
/
A flavorful grill restaurant with a diverse and fun menu.

Facebook - Instagram


9.  RÖSK RÝMI - Kaupvangsstræti 8-12

Vinnustofur listhópsins RÖSK. Í hópnum eru Jonna Jónborg Sigurðardóttir, Thora Love, Dagrún Matthíasdóttir og Brynhildur Kristinsdóttir.
/
The studios of the RÖSK art collective. The group consists of Jonna Jónborg Sigurðardóttir, Thora Love, Dagrún Matthíasdóttir, and Brynhildur Kristinsdóttir.

Facebook


10.  Ölstofa Akureyrar - Kaupvangsstræti 23

Ölstofa og sportbar með góðu úrvali og notalegu andrúmslofti.
/
A pub and sports bar with a great selection and a cozy atmosphere.

Facebook - Instagram


11.  Gestavinnustofur Listasafnsins - Kaupvangsstræti 8-12

Gestavinnustofur með sameiginlegu sýningarými. Fjöldi gestalistamanna dvelur og sýnir á hverju ári.
/
An artist residencies with a shared exhibition space. Numerous guest artists reside and exhibit here every year.

Heimasíða/Website


12.  Gestavinnustofa Gilfélagsins - Kaupvangsstræti 23

Gestavinnustofa þar sem listamenn dvelja í mánuð í senn og endar með sýningu í Deiglunni.
/
An artist residency where artists stay for a month at a time, culminating in an exhibition in Deiglan.

Heimasíða/Website

 

*Birt með fyrirvara um breytingar /Subject to change