65.000 kr
Mood filler - Steinar Fjeldsted
Steinar Fjeldsted hefur frá unga aldri tjáð sig í gegnum listina á ýmsa vegu en þekktastur er hann fyrir að vera einn af stofnmeðlimum hljómsveitarinnar Quarashi. Hann hefur búið víða erlendis og hefur fjölbreytt reynsla haft djúp áhrif á listsköpun hans. Undanfarin ár hefur Steinar fært sig meira að myndlistinni og þróað með sér einstaka sjónræna heild. Verkin hans endurspegla ferðalag, lífssýn og tengsl á milli tónlistar og myndlistar. Kíktu í Sjoppuna og skoðaðu þessi flottu verk. Sjón er sögu ríkari.
*Kemur í ramma frá listamanni.
Stærð: 40x59,5 cm.
Með ramma: 51,5x72 cm.
Akríl, túss & spray.